■ Hreyfimyndum breytt
Til að breyta hreyfimyndum í Gallerí og búa til sérsniðnar hreyfimyndir skaltu
fletta að myndskeiði og velja Valkostir > Ritill hreyfimynda > Valkostir >
Breyta myndskeiði.
Í myndvinnslunni sjást tvær tímalínur: tímalína myndskeiðsins og tímalína
hljóðinnskotsins. Ef þú bætir myndum, texta eða umbreytingum við hreyfimyndir
sjást þessi atriði á tímalínu þeirra. Til að skipta á milli tímalína er flett upp
eða niður.