Nokia 5320 XpressMusic - Upplýsingar um tengiliði vistaðar og skipulagðar

background image

Upplýsingar um tengiliði vistaðar og skipulagðar

Til að vista og skipuleggja tengiliðaupplýsingar, svo sem nöfn, símanúmer og
heimilisföng skaltu velja

> Tengiliðir.

Til að bæta við nýjum tengilið skaltu velja Valkostir > Nýr tengiliður. Fylltu út þá
reiti sem þú vilt og veldu Lokið.

Til að láta tækið sýna listann yfir tengiliði í minni tækisins og á SIM-kortinu skaltu
velja Valkostir > Stillingar > Tengiliðir sem birtast og merkja Minni símans og
SIM-minni.

Til að afrita nöfn og símanúmer af SIM-kortinu yfir á tækið, eða öfugt, skaltu
fletta að tengiliðnum (eða merkja tilteknu tengiliðina) og velja Valkostir >
Afrita > Minni símans eða SIM-minni.

Til að sjá upplýsingar um minnisnotkun tengiliða skaltu velja Valkostir >
Um tengiliði.

Til að skoða listann yfir númer í föstu númeravali skaltu velja Valkostir >
SIM-númer > Teng. í föstu nr.vali. Þessi stilling birtist einungis ef SIM-kortið
styður það.

Þegar fast númeraval er virkt kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er
forritað í tækið.

Til að velja sjálfgefin númer og heimilisföng tengiliðs skaltu velja hann og síðan
Valkostir > Sjálfvalin. Flettu að sjálfgefna valkostinum og veldu Á númer.