Stillingar fyrir tölvupóst
Veldu >
Skilaboð > Valkostir > Stillingar > Tölvupóstur > Pósthólf, pósthólfið
og úr eftirfarandi:
Tengistillingar — Til að tilgreina tengistillingar, svo sem miðlara og
samskiptareglur. Þegar búið er að tilgreina tegund pósthólfs er ekki hægt
að gera breytingar þar á.
Notandastillingar — Til að tilgreina notandastillingar, svo sem hvenær skilaboð
eru send og hvort setja skuli inn undirskrift.
Móttökustillingar — Til að tilgreina móttökustillingar, svo sem hvaða hluta
skilaboðanna og hve mörgum skilaboðum skuli tekið á móti. Það fer eftir tegund
pósthólfs hvaða kostir eru í boði.
Sjálfvirk tenging — Til að tilgreina stillingar fyrir sjálfvirka móttöku skilaboða
með vissu millibili eða hvenær tekið skuli á móti tilkynningu um tölvupóst frá
miðlaranum.