Nokia 5320 XpressMusic - Ritun og sending skilaboða

background image

Ritun og sending skilaboða

Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð eru
send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur eða önnur tákn ásamt stöfum sumra tungumála, taka meira pláss
en venjulegir stafir og takmarka þannig þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum
skilaboðum.

Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn
fer yfir þessi mörk gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda hana með MMS.

Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð.
Útlit skilaboða getur verið breytilegt eftir móttökutækinu.

1. Veldu >

Skilaboð > Ný skilaboð og tegund skilaboða. Til að búa til

textaskilaboð eða margmiðlunarboð skaltu velja Skilaboð. Tegund
skilaboðanna breytist sjálfkrafa eftir innihaldinu.

background image

34

S k i l a b o ð

2. Í reitinn Til skaltu slá inn símanúmer eða netfang viðtakendanna eða styðja

á skruntakkann til að velja viðtakendurna í Tengiliðir. Aðgreindu viðtakendur
með semíkommu (;).

3. Til að slá inn efni margmiðlunarboða eða tölvupósts skaltu fletta að reitnum

Efni. Ef efnisreiturinn sést ekki í margmiðlunarboðum skaltu velja Valkostir >
Skilaboðahausar, merkja Efni og velja Í lagi.

4. Flettu niður að skilaboðareitnum og sláðu inn textann.

Þegar textaskilaboð eru slegin inn sýnir lengdarvísir skilaboðanna hve marga
stafi er hægt að slá inn. Til dæmis merkir 10 (2) að enn megi bæta 10 stöfum
við texta sem sendur verður í tveim hlutum.

Til að setja hlut, svo sem mynd, myndskeið, tilkynningu eða nafnspjald, inn
í margmiðlunar- eða textaskilaboð skaltu styðja á skruntakkann og velja
Setja inn efni.

Til að taka upp nýja hljóðskrá fyrir hljóðskilaboð skaltu velja Taka upp. Til að
nota eldri hljóðskrá skaltu velja Valkostir > Setja inn hljóðskrá > Úr Galleríi.

5. Veldu Valkostir > Senda til að senda skilaboðin.