Nokia 5320 XpressMusic - Say and Play tónlistarleit

background image

Say and Play tónlistarleit

Þegar leitað er að tónlist með Say and Play er hægt að hefja spilun með því að
nefna til dæmis nafn flytjandans.

Þegar leitað er að tónlist með Say and Play í fyrsta skipti, og þegar búið er að
hlaða nýjum lögum niður í tækið, skaltu velja Valkostir > Uppfæra safn til að
uppfæra raddskipanir.

Til að ræsa Say and Play tónlistarleitarforritið skaltu halda eigin lykli inni. Nánari
upplýsingar um eigin lykil, sjá „Eigin lykill“ á bls. 15. Þegar tónninn heyrist skaltu
segja nafn flytjanda, nafn flytjanda og heiti lags, plötuheiti eða heiti spilunarlista.
Haltu tækinu í um 20 cm (8 tommu) fjarlægð frá munninum og talaðu með
venjulegri rödd þinni. Hafðu höndina ekki yfir hljóðnemanum sem er neðst í hægra
horni tækisins. Einnig er hægt að hefja Say and Play tónlistarleitina með því að
velja

>

Forrit > Tónlistarleit.

Athuga skal að raddskipanir byggjast á lýsigögnum (nafni flytjanda og heiti lags)
laganna í tækinu. Say and Play tónlistarleitin styður tvö tungumál: Ensku og
tungumálið sem þú hefur valið fyrir símann. Tungumálið sem lýsigögn lagsins
eru rituð á verður að vera enska eða tungumál símans.