Hraðval
Hraðval er leið til að hringja á fljótlegan hátt í númer sem oft er hringt í
(í biðstöðu). Þú þarft að tengja símanúmer við hraðvalstakkana 2 til 9
(1 er frátekinn fyrir talhólfið), og stilla Hraðval á Virkt.
Til að tengja símanúmer við hraðvalstakka skaltu velja
> Stillingar > Hraðval.
Flettu að takkatákni og veldu Valkostir > Á númer. Til að breyta númerinu skaltu
velja Valkostir > Breyta.
Til að gera hraðvalið virkt skaltu velja
> Stillingar > Símstill. > Sími > Símtöl >
Hraðval > Virkt.
Til að hringja í hraðvalsnúmer skaltu halda hraðvalstakkanum inni þar til síminn
hringir í númerið.