Myndsímtali komið á
Til að geta átt myndsímtal þarftu að vera með USIM-kort og vera innan
þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
myndsímtalsþjónustu og áskrift að henni. Myndsímtal getur aðeins farið fram
milli tveggja aðila og þegar ekkert annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal
er í gangi. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæfan farsíma eða
ISDN-tengd tæki.
21
S í m t ö l
Þú hefur tekið kyrrmynd til að senda í stað hreyfimyndar.
Þú hefur hafnað myndsendingu úr tækinu þínu.
1. Sláðu símanúmerið inn í biðstöðu og veldu Myndsímtal. Eða veldu
>
Tengiliðir, flettu að tilteknum tengilið og veldu Valkostir > Hringja >
Myndsímtal.
2. Til að velja á milli þess að sýna hreyfimyndir eða að heyra einungis hljóð
þegar myndsímtal fer fram skaltu velja Myndsending á eða Myndsending af
á tækjastikunni.
Þótt þú hafnir myndsendingu í myndsímtali verður tekið gjald fyrir símtalið
sem myndsímtal. Fáðu verðupplýsingar hjá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni.
3. Myndsímtalinu er lokið með því að styðja á hætta-takkann.