Nokia 5320 XpressMusic - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um að þú
notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða
heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi skrefum:

Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að
rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða
söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort rafhlaðan sé
ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til
verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.

Sannvottun heilmyndar

1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að

sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og
„Nokia Original Enhancements“ táknið frá öðru.

2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða

niður ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.

Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?

Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Notkun rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda
getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og aukahlutir þess virki ekki
sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða
ábyrgðir sem eiga við tækið.

Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia-rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.

background image

67

U m h i r ð a o g v i ð h a l d