■ Ytri læsing
Hægt er að fjarlæsa tækinu og minniskortinu með textaskilaboðum. Til að hægt
sé að fjarlæsa tækinu og velja hvaða texta skuli nota í skilaboðin skaltu velja
>
Stillingar > Símstill. > Almennar > Öryggi > Sími og SIM-kort > Ytri símalæsing >
Kveikt. Sláðu inn skilaboðin (5 til 20 stafi), staðfestu þau og sláðu inn
læsingarnúmerið.
Sendu skilaboðin í farsímanúmerið þitt til að læsa tækinu. Til að opna tækið síðar
skaltu velja Úr lás og slá inn læsingarnúmerið.