Nokia 5320 XpressMusic - Biðstaða

background image

Biðstaða

Þegar kveikt er á tækinu, og það er skráð hjá símafyrirtæki, er það í biðstöðu og
tilbúið til notkunar.

Styddu á hringitakkann til að opna lista yfir númer sem hringt hefur verið í nýlega.

Haltu hægri valtakkanum inni til að nota raddskipanir eða raddstýrða hringingu.

Ef skipta á um snið er stutt á rofann og sniðið valið.

Tengingu við vefinn er komið á með því að halda 0 inni.

Til að velja útlit biðskjásins skaltu velja

> Stillingar > Símstill. > Almennar >

Sérstillingar > Biðstaða > Þema biðskjás.

Það fer eftir þema biðskjásins hvaða forrit eða atriði hægt er að setja
á flýtivísalistann í biðstöðu eða skruntakkana. Til að velja forritin eða
atriðin skaltu velja

> Stillingar > Símstill. > Almennar > Sérstillingar >

Biðstaða > Flýtivísar.