■ Stjórnandi tenginga
Í stjórnanda tenginga geturðu skoðað stöðu gagnatenginga, skoðað magn
móttekinna og sendra gagna og rofið ónotaðar tengingar.
Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu kunna að
vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð reikninga,
sköttum og öðru slíku.
Veldu >
Stillingar > Stj. teng..
Til að sjá upplýsingar um tengingu skaltu fletta að tengingu og velja Valkostir >
Upplýsingar.
Til að rjúfa tengingu skaltu fletta að henni og velja Valkostir > Aftengja.
Til að rjúfa allar tengingar skaltu velja Valkostir > Aftengja allar.