Nokia 5320 XpressMusic - Leyfi

background image

Leyfi

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til
að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að fá aðgang
að efni sem verndað er með WMDRM, OMA DRM 1.0 og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn
stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks
hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni réttindatækni sé endurvakin.
Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu.
Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er verndað með öðrum
gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem tilgreinir hvernig
hægt er að nota efnið.

Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu. Ef notaðar eru aðrar
flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt
OMA DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði fluttir með efninu.
Einnig gæti þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.

Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt opnunarlyklum þess ef
minni tækisins er forsniðið. Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í tækinu
skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota
efnið aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu SIM-korti og aðeins er hægt að fá
aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í tækinu.

Til að sjá leyfi sem vistuð eru í tækinu skaltu velja

> Stillingar >

Gagnastjóri > Leyfi.

Til að skoða gild leyfi sem eru tengd einni eða fleiri miðlunarskrá skaltu velja
Gild leyfi. Leyfishópur, sem inniheldur nokkur leyfi, er sýndur með

.

Til að sjá leyfin í leyfishópnum skaltu velja leyfishópinn.

Til að sjá ógild leyfi þar sem notkunartími skráar er útrunninn skaltu velja
Ógild leyfi. Til að kaupa meiri notkun eða lengja notkunartíma skráarinnar skaltu
velja ógilt leyfi og Valkostir > Sækja nýtt leyfi. Ekki er víst að hægt sé að uppfæra
leyfi ef móttaka þjónustuboða er óvirk.

Til að skoða leyfi sem eru ekki í notkun skaltu velja Ónotuð leyfi. Engar skrár eru
tengdar ónotuðum leyfum.

Til að skoða nákvæmar upplýsingar, svo sem gildistíma og hvort hægt sé að senda
skrána, skaltu fletta að leyfi og velja það.

background image

60

U m s j ó n m e ð g ö g n u m