Takkar og skipanir sem nýtast þegar vafrað er
Til að opna tengil, velja eða merkja í reiti skaltu styðja á skruntakkann.
Til að fara til baka um eina síðu þegar þú vafrar skaltu velja Til baka. Ef Til baka er
ekki í boði skaltu velja Valkostir > Valm. í leiðarkerfi > Forsaga til að skoða lista
í tímaröð yfir síður sem þú hefur skoðað. Til að velja tiltekna síðu skaltu fletta til
vinstri eða hægri og velja hana. Þessi listi er hreinsaður í hvert sinn sem hætt
er að vafra.
Til að vista bókamerki þegar vafrað er skaltu velja Valkostir > Vista
í bókamerkjum.
Til að uppfæra efni síðunnar skaltu velja Valkostir > Valm. í leiðarkerfi >
Hlaða aftur.
Til að opna tækjastiku vafrans skaltu fletta að auðum hluta síðunnar og halda
skruntakkanum inni.
Til að rjúfa tengingu og skoða vefsíðu án tengingar skaltu velja Valkostir >
Verkfæri > Aftengja. Veldu Valkostir > Hætta til að hætta að vafra.
Flýtivísar þegar vafrað er
1 — Opna bókamerkin.
2 — Finna leitarorð á síðunni.
46
I n t e r n e t
3 — Fara aftur um eina síðu.
5 — Birta alla opna glugga.
8 — Birta yfirlit síðunnar sem er opin. Styddu aftur á 8 til að auka aðdrátt og skoða
tiltekinn hluta síðunnar.
9 — Slá inn nýtt veffang.
0 — Fara á upphafssíðu.
* eða # — Súmma síðuna að eða frá.