Nokia 5320 XpressMusic - Samskipanastillingar

background image

Samskipanastillingar

Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, tölvupóst, samstillingu, straumspilun
og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar í tækinu. Tækið kann að
setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra, margmiðlunarboð, aðgangsstað og
straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem notað er. Ef ekki, þá er hægt að
nota stillingaforritið til að setja upp stillingarnar. Stillingarnar er hægt að fá

background image

12

T æ k i ð

í samskipanaboðum og vista þær í símanum. Nánari upplýsingar má fá hjá
þjónustuveitunni eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.

Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og
virkjaðar sjálfvirkt, birtist 1 ný skilaboð á skjánum. Veldu Sýna > Valkostir > Vista
til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá
þjónustuveitunni.