Nokia 5320 XpressMusic - microSDHC-kort

background image

microSDHC-kort

Aðeins skal nota samhæf microSD-kort og microSDHC-kort sem Nokia samþykkir
til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort.
Þó getur verið að sum kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki.
Ósamhæf kort geta skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.

Mikilvægt: Fjarlægið ekki minniskortið meðan á aðgerð stendur og kortið
er í notkun. Ef kortið er fjarlægt í miðri aðgerð getur það valdið skemmdum
á minniskortinu og tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta skemmst.

Geyma skal minniskort þar sem lítil börn ná ekki til.

Hægt er að auka tiltækt minni með minniskorti. Hægt er setja minniskort í símann
eða fjarlægja það án þess að slökkva á tækinu.